top of page

HÚBERT NÓI

Innri - ytri veruleiki
14. maí - 11. júni 2022
opið fim-sun 14-18

Entropy
Entropy er hugtak úr eðlis- og efnafræði sem greinir frá tímastefnu efnisheimsins til aukinnar óreiðu, Chaos. Dæmi um þetta er þegar hitun færir vatn úr föstu formi í fljótandi og úr fljótandi formi í gufu, ferli í tímalínu þar sem óreiða vatnsmólikúla eykst við hækkandi hitastig. Óreiða er hið eðlilega ferli tilverunnar, lögmál, sem maðurinn vill halda í við með aðferðum sem hann hefur vit til. Fegurðin, Aestetic, hver svo sem hún er okkur, hefur aðdráttarkraft líkt og þyngdaraflið, hún dregur að sér og festir athyglina. Fegurðin kemur reglu á óreiðu hugsana og tilfinninga, stöðvar tímann. Það er ekki endilega kjörástand en drjúg kjölfesta og aflgjafi áður en óreiðan, oft frjósöm og hvetjandi, færist aftur yfir tilveruna.Symmetría, samhverfa er í mínum verkum þegar innri- og ytri veröld ná um stundarsakir ein-hverskonar jafnvægi, Equilibrium. Symmetria er ekki endilega sjónrænt fyrirbæri, þannig má líta á kort af landsvæði og upplifun af staðnum sem kortið sýnir sem form af samhverfu innri- og ytri heims. Jafnvægi á einu sviði getur skapað ójafnvægi í öðrum ferlum. Það væri t.d illa fyrir mannkyninu komið ef styrkur koldíoxíðs í andrúmsloftinu umhverfis væri sá sami og hann er í loftinu sem við öndum frá okkur. Þá symmetríu mun þó enginn upplifa því löngu áður tæki ytri heimurinn afgerandi breitingum sem myndu útiloka allt líf vegna afleiðinga af hækkandi hitastigi jarðar, Chaos. 

bottom of page