Listamenn
Auður Ómarsdóttir
Auður Ómarsdóttir (f.1988) vinnur myndlist sína í blönduðum miðlum en einna helst í málverki, skúlptúr, ljósmyndun og teikningu. Líkamleiki og eftirtektar-semi spila stóra rullu í sköpunar-ferli hennar. Innblásturinn kemur jafnan frá persónulegum atburðum, þáttum í nærumhverfi eða af internetinu sem Auður yfirfærir í myndrænt tungumál sitt.
Árni Páll
Árni Páll Jóhannsson ólst upp í Stykkishólmi og áður en hann flutti til Reykjavíkur hafði hann farið í námsferð til Englands. Þar komst hann fyrst í kynni við þá nýju strauma í myndlist sem áttu eftir að móta hans eigin listsköpun: Ég fór til Englands frá Stykkishólmi og meðan ég var þar slysaðist ég á sýningu þar sem ég sá verk sem kveiktu í mér.
Bjarni Sigurbjörnsson
Bjarni hefur haldið fjölda sýninga bæði hér heima og erlendis í rúma þrjá áratugi.
Bjarni stúderaði í skólanum SanFrancisco Art Institute árin 1990- 1996 þar sem hann lauk bæði BFA og MFA námi í myndlist með áherslu á málverk.
Bragi Ásgeirsson
Bragi Ásgeirsson (fæddur 28.maí 1931, dáinn 25. mars 2016) var grafíklistamaður, listmálari og myndlistakennari. Þar að auki var hann um árabil gagnrýnandi á Morgunblaðinu. Bragi fékk riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu árið 2001 fyrir „störf í þágu lista og menningar.“
Erla Þórarinsdóttir
Erla Þórarinsdóttir er fædd í Reykjavík 22. september árið 1955. Hún ólst upp á Íslandi, í Danmörku og Svíþjóð. Erla stundaði nám við Konstfack lista- og hönnunarháskólann í Stokkhólmi á árunum 1976 – 1981, með viðkomu í Gerrit Rietweld Akademie sem gestanemi í eina önn árið 1981.
Erla S. Haraldsdóttir
Erla S. Haraldsdóttir notar málverk, teikningar, prentverk og klippimyndir sem miðil til þess að vinna með menningarleg tákn og finna þeim stað í áleitnum og narratívum myndum. Hún er menntuð í málaralist og með fjölbreyttan bakgrunn í gjörningalist og vídeóverkum, en einbeitir sér nú að fígúratívum málverkum.
Erna Mist
Erna Mist (f. 1998 í Reykjavík) er listmálari og pistlahöfundur sem málar á striga og skrifar í blöð. Þrátt fyrir ungan aldur hafa verk hennar staðið til sýnis í London, Mílanó og Reykjavík og selst til sautján landa í þremur heimsálfum. Erna býr bæði í Reykjavík og London en stefnir á útskrift úr The Slade School of Fine Art vorið 2023. Næturveröld er hennar fyrsta einkasýning á Íslandi.
Gotti Bernhöft
Gotti varð frægur á sínum tíma þegar hann hannaði plötuumslag fyrir hljómsveitina Sigur Rós. Síðan þá hafa fjölmargir einstaklingar í heiminum látið húðflúra verkið á sig.
Jakob Veigar Sigurðsson
Jakob Veigar útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands með BA gráðu árið 2016 og úr Vienna Academy of Fine Arts með MA gráðu árið 2019. Hann hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og sett upp einkasýningar um allan heim.
Helgi Þorgils Friðjónsson
Það vantar ekki nema þrjú ár í hálfa öld síðan Helgi Þorgils Friðjónsson hélt sína fyrstu einkasýningu og ári seinna, 1976, hafði hann lokið námi við Myndlista- og handíðaskólann og haldið Hl Hollands í framhalds-nám við De Vrije Academie í Haag.
Húbert Nói Jóhannesson
Húbert Nói Jóhannesson útskrifaðist frá Nýlistadeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1987, hann nam raunvísindi við Háskóla Íslands og vann á námsárum sínum við jarðfræði-rannsóknir á hálendi Íslands og víða má greina merki þess í verkum hans.
Mireya Samper
Mireya Samper lærði myndlist í Mynd-og Handíðaskóla Íslands sem og í listaháskólanum í Marseille, Frakklandi, hvar hún tók bæði BA próf og meistaragráðu. Hún hefur sýnt skúlptúra, innsetningar, málverk og útilistaverk um heim allan, meðal annars í Frakklandi, Japan, Indlandi og Íslandi.
Sigga Björg
Sigga Björg Sigurðardóttir (f. 1986) er listamaður búsett í Reykjavík. Sigga Björg lauk MFA gráðu frá Glasgow School of Art 2004, og hefur síðan sýnt verk sín víða um heim.
Snorri Ásmundsson
Snorri Ásmundsson (f. 1966) hefur verið starfandi sem myndlistamaður í tuttugu ár en á þeim tíma hefur Snorri staðið fyrir ýmsum samfélags-gjörningum sem hafa gjarnan vakið mikla athygli.